Persónuvernd

Almennt
GS Hestavörur (Vals vörur ehf.) (hér eftir „GS Hestavörur“, „fyrirtækið“, „við“, „okkar“), er annt um friðhelgi einstaklinga og tekur persónuvernd mjög alvarlega. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf. Í þessari tilkynningu má sjá hvaða persónuupplýsingum fyrirtækið safnar um einstaklinga vegna starfsemi sinnar og í hvaða tilgangi. Þá má hér finna upplýsingar um aðra viðtakendur upplýsinganna og hvað við geymum þær lengi. Auk þess má hér finna upplýsingar um á hvaða grundvelli GS Hestavörur safnar persónuupplýsingum, hvaða réttinda einstaklingar njóta og fleiri mikilvægar upplýsingar sem tengjast lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Um hverja safnar GS Hestavörur persónuupplýsingum?
Í starfsemi GS Hestavara er nauðsynlegt að safna og vinna með persónuupplýsingar um mismunandi hópa einstaklinga. Þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið hefur undir höndum geta verið um starfsmenn þess, viðsemjendur, viðskiptavini, þá sem skrá sig á póstlista og aðra þriðju aðila sem nauðsynlegt er að eiga samskipti við.

Hvaða persónuupplýsingum safnar GS Hestavörur um þig?
GS Hestavörur safnar ólíkum persónuupplýsingum um mismunandi hópa einstaklinga eftir því hvaða starfsemi fyrirtækisins er um að ræða. Undir öllum kringumstæðum leitast GS Hestavörur við að safna einungis þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar.

GS Hestavörur safnar nauðsynlegum upplýsingum um starfsfólk, svo sem upplýsingum um nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer, samskipti, viðveru, laun og fleira. Einnig þarf fyrirtækið að halda til haga nauðsynlegum tengiliðaupplýsingum, svo sem nafni og netfangi, um starfsmenn viðskiptavina og aðra þriðju aðila. Að auki safnar GS Hestavörur nauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavini þegar við á, til dæmis nafni, kennitölu, netfangi, símanúmeri, heimilisfangi og upplýsingum um efni pöntunar. Þá safnar GS Hestavörur upplýsingum um netföng þeirra sem skrá sig á póstlista. Að auki safnar GS Hestavörur myndefni úr eftirlitsmyndavélum þar sem finna má persónuupplýsingar.

Af hverju safnar GS Hestavörur persónuupplýsingum um þig?
Tilgangurinn með söfnun upplýsinganna er að:

Geta efnt samningsskyldu, til dæmis við starfsmenn og viðskiptavini.
Gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins, svo sem með rafrænu eftirliti
Gæta að lögmætum hagsmunum annarra.
Uppfylla lagaskyldu.
Kynna ýmislegt sem tengist starfsemi fyrirtækisins, þ.e. þeim aðilum sem skrá sig á póstlista.

Á hvaða lagagrundvelli vinnur GS Hestavörur persónuupplýsingar um þig?
GS Hestavörur safnar og vinnur persónuupplýsingar á eftirfarandi lagagrundvelli:

Samþykki þínu.
Til að uppfylla samningsskyldu.
Til að uppfylla lagaskyldu.
Til að gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins.
Til að gæta að lögmætum hagsmunum annarra.

Hve lengi geymir GS Hestavörur persónuupplýsingar um þig?
GS Hestavörur geymir persónuupplýsingar einungis í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að hafa þær undir höndum. Þegar ekki er þörf fyrir að hafa persónuupplýsingar undir höndum lengur eyðir fyrirtækið þeim með öruggum hætti.

Frá hverjum safnar GS Hestavörur upplýsingum um þig?
GS Hestavörur safnar persónuupplýsingum frá þér beint. Ef safnað er persónuupplýsingum frá þriðja aðila mun GS Hestavörur eftir fremsta megni leitast við að upplýsa viðkomandi einstakling um það.

Hvenær miðlar GS Hestavörur þínum persónuupplýsingum til þriðju aðila og af hverju?
GS Hestavörur miðlar persónuupplýsingum til þriðju aðila sem ráðnir eru af fyrirtækinu til að vinna fyrir fram ákveðna vinnu, svo sem þjónustuveitenda, umboðsmanna eða verktaka. Í þeim tilfellum gerir fyrirtækið vinnslusamning við viðkomandi aðila. Slíkur samningur kveður meðal annars á um skyldu hans til að fylgja fyrirmælum GS Hestavara um meðferð og vinnslu persónuupplýsinga og er honum óheimilt að nota þær í öðrum tilgangi. Jafnframt ber honum skylda til að tryggja öryggi upplýsinganna með viðeigandi hætti.

Flutningur persónuupplýsinga út fyrir Evrópska efnahagssvæðið
GS Hestavörur er kunnugt um að ströng skilyrði gilda um flutning persónuupplýsinga til ríkja sem staðsett eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Fyrirtækið gerir það ekki undir neinum kringumstæðum nema fullnægjandi heimild standi til þess samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Réttindi þín
Hafir þú veitt samþykki þitt fyrir vinnslu tiltekinna persónuupplýsinga átt þú rétt samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónupplýsinga nr. 90/2018 að afturkalla samþykki þitt hvenær sem er. Sá réttur hefur þó ekki áhrif á lögmæti þeirrar vinnslu sem fram fór áður en samþykki var afturkallað. Þá nýtur þú einnig annarra réttinda, svo sem réttar til aðgangs að þínum gögnum, réttar til að fá rangar eða villandi upplýsingar leiðréttar, réttar til að persónuupplýsingum um þig verði eytt, réttar til að hindra að unnið verði með persónuupplýsingar um þig og réttar til að flytja eigin gögn. Hafa skal í huga að réttindi þín eru ekki alltaf fortakslaus og kunna að vera háð ýmsum skilyrðum.

Öryggi persónuupplýsinga
GS Hestavörur hefur gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulegra öryggisráðstafana til að tryggja öryggi persónuupplýsinga í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Felur það meðal annars í sér að aðeins þeir starfsmenn hafa aðgang að persónuupplýsingum sem þess þurfa starfs síns vegna. Auk þess stuðlar fyrirtækið að því að starfsmenn fái reglulega viðeigandi fræðslu og þjálfun um öryggismál.

Samskiptaupplýsingar GS Hestavara
Nafn: GS Hestavörur (Vals vörur ehf.)
Heimilisfang: Ármúla 3, 108 Reykjavík
Netfang: gshestavorur@gshestavorur.is.

Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd
Dragir þú í efa að GS Hestavörur meðhöndli persónuupplýsingar þínar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hefur þú rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (www.personuvernd.is).